Kvótafrumvarpið í góðum farvegi

Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Lilja Rafney Magnúsdóttir.

„Það fer inn á ríkisstjórnarfund í fyrramálið. Frumvarpið var kynnt á þingflokksfundi VG í dag eins og það liggur fyrir,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, um stöðu sjávarútvegsfrumvarpsins á þingi. Hún segir frumvarpið munu verða afgreitt á vorþingi.

Lilja Rafney er bjartsýn um afgreiðslu frumvarpsins á þingi.

„Ég sé góðan framgang. Frumvarpið verður samþykkt á þessu vorþingi,“ segir hún en þingfrestun er 31. maí.

Þingfundur er næst miðvikudaginn 28. mars en mánudagurinn 26. mars og þriðjudagurinn 27. mars eru nefndadagar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert