Norðurlandaráð fundar í Alþingishúsi

Vorþing Norðurlandaráðs er hafið í Alþingishúsinu.
Vorþing Norðurlandaráðs er hafið í Alþingishúsinu. mbl.is/Sigurgeir

Vorþing Norðurlandaráðs stendur nú yfir í Alþingishúsinu. Á fundinum verður rætt um málefni norðurskautsins út frá umhverfis-, jafnréttis- og velferðarsjónarmiðum. Norðurlandaráð er skipað 87 þingmönnum frá öllum Norðurlandaþjóðunum.

Meðal þeirra tillagna sem fjallað verður um á þinginu eru tillögur um samræmda stefnumörkun Norðurlandanna í norðurskautsmálum, fjármögnun á auknum björgunarviðbúnaði á norðurskautssvæðinu, umhverfisvernd og olíu- og gasvinnslu á norðurskautssvæðum og málefni frumbyggja á norðurskautssvæðum.

Vorþingið er nýmæli í störfum ráðsins og ber upp á dag Norðurlandanna. Þetta er í fyrsta sinn sem Norðurlandaráð fundar í Alþingishúsinu en annars staðar á Norðurlöndunum hefur ráðið jafnan fundað í þjóðþingunum. Marsfundir Norðurlandaráðs eru haldnir í Reykjavík 21. og 22. mars.

Norðurlandaráð er skipað 87 þingmönnum frá öllum Norðurlandaþjóðunum.

Íslandsdeild Norðurlandaráðs skipa Helgi Hjörvar formaður, Álfheiður Ingadóttir varaformaður, Árni Þór Sigurðsson, Bjarni Benediktsson, Illugi Gunnarsson, Lúðvík Geirsson og Siv Friðleifsdóttir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert