Fagna milljarði í almenningssamgöngur

mbl.is/hag

Landvernd fangar ákvörðun ríkisstjórnarinnar að standa við fyrri yfirlýsingar og láta milljarð króna renna árlega til almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu næstu 10 árin. Ákvörðunin er í góðu samræmi við ályktun Landverndar á aðalfundi félagsins í fyrra þar sem samtökin hvöttu stjórnvöld til að hefja átak í þessa veru.

 Samgöngur eru næststærsta uppspretta á útstreymi gróðurhúsalofttegunda hérlendis, á eftir iðnaði og efnanotkun og fyrir vegasamgöngur jókst útstreymi um 81% milli áranna 1990 og 2007, aðallega eftir árið 2002. Þá er einkabílaeign hérlendis með því mesta sem þekkist í heiminum. Efling almenningssamgangna er því mikilvægur liður í að draga úr útstreymi. Landvernd hvetur stjórnvöld og sveitarfélög áhöfuðborgarsvæðinu til að halda áfram á þessari braut og styrkja almenningssamgöngur og innviði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, segir í ályktun Landverndar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert