Þór leggur af stað heim í vikunni

Varðskipið Þór við Miðbakka í Reykjavík.
Varðskipið Þór við Miðbakka í Reykjavík. Mbl.is/Ómar Óskarsson

Varðskipið Þór fór í prufusiglingu í gær frá Bergen þar sem gerðar voru titrings- , eldsneytis- og hraðamælingar  á ýmsum hröðum og undir misjöfnu álagi. Rolls Royce í Noregi skipti nýverið um aðra aðalvél skipsins vegna titrings sem mældist í skipinu eftir að það kom til Íslands síðastliðið haust og er þessi framkvæmd öll á ábyrgð og kostnað Rolls Royce.

Siglingin sem stóð yfir í um 12 klukkustundir gekk vel að sögn skipherra. Enginn óeðlilegur titringur mældist í siglingunni og virðist sem ganghraði varðskipsins hafi aukist frá því sem áður var því hann mældist 20,1 sml en áður mældist hann 19,45 sml.

Landhelgisgæslan ber engan kostnað af viðgerðinni

Reiknað er með að Þór verði afhentur um miðja vikuna og siglir þá til Íslands, að sögn Hrafnhildar Brynju Stefánsdóttur, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. Síðastliðna daga hefur áhöfn varðskipsins setið ýmis námskeið sem tengjast búnaði skipsins.

Varðskipið Þór kom til Noregs 9. febrúar síðastliðinn og hefur eftirlit með framkvæmdunum, af hálfu Landhelgisgæslunnar, verið framkvæmt af tæknistjóra og yfirvélstjóra. Landhelgisgæslan mun ekki bera neinn kostnað af framkvæmdunum og lengist ábyrgðartími véla og skips sem nemur framkvæmdatímanum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert