Nú standa yfir framkvæmdir á byggingunni sem stendur á milli Hótel Borgar og Apóteksins við Austurvöll. Húsið, sem var byggt mun seinna en þau sem liggja að því, hefur verið umdeilt í gegn um tíðina þar sem það hefur ekki þótt í samræmi við eldri húsin. Ekki fékkst þó leyfi til að samræma útlitið alveg og framhlið hússins verður endurgerð í sömu mynd og áður. Þó verður reynt að samræma útlitið lítillega t.a.m. verður græni liturinn sem einkenndi húsið nú ljósari. Gert er ráð fyrir að ljúka framkvæmdunum þann 8. maí.