SUS gerir tilboð í málið hennar Jóhönnu

Málið, sem forsætisráðherra dreypti á og boðið var upp í …
Málið, sem forsætisráðherra dreypti á og boðið var upp í útvarpsþættinum Virkum morgnum fyrr í þessum mánuði.

Í dag er nákvæmlega eitt á þar til alþingiskosningar þurfa í síðasta lagi að fara fram. Að því tilefni hefur Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) gert Sjónlistarmiðstöðinni á Akureyri tilboð í plastmál sem miðstöðin keypti nýlega og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hafði drukkið úr. Tilboðið er að fjárhæð kr. 210.000, sem er tvöföld sú fjárhæð sem Sjónlistamiðstöðin greiddi fyrir það. Tilboðið gildir til kl. 16 á mánudaginn.

„SUS telur að málið hafi mikið menningarlegt og sögulegt gildi sem eina málið sem forsætisráðherra, í verstu ríkisstjórn sögunnar, hefur klárað. Sem dæmi um mál sem forsætisráðherra hefur ekki klárað má nefna fyrirheit um lausn á skuldavanda heimilanna og blessunarlega hefur henni ekki tekist að rústa fiskveiðistjórnkerfinu og stjórnarskránni. Ekkert af þessu hefur henni tekist þótt hún hafi haft til þess rúm þrjú ár.

SUS hefur þegar fjármagnað kaupin, náist samningar við Sjónlistamiðstöðina, með framlögum frá félagsmönnum og öðrum velunnurum SUS,“ segir í fréttatilkynningu frá SUS.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert