Áunnin réttindi lækki um 7,5%

mbl.is/Arnaldur

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs mun leggja það til við ársfund sjóðsins, sem verður haldinn á morgun, að áunnin réttindi verði lækkuð um 7,5%. Þetta ákvað stjórnin á fundi sínum 24. apríl sl.

Fram kemur á vef lífeyrissjóðsins að stjórnin telji rétt að stíga verulegt skref til að jafna mun á eignum og skuldbindingum, með því að lækka réttindi. Réttindi sjóðfélaga muni alltaf ráðast af eignum á hverjum tíma og lítil innistæða sé fyrir loforðum um réttindi, sem séu talsvert hærri en eignir standi undir.

„Að mati stjórnarinnar er því réttara að jafna þennan mun að mestu nú, fremur en að ferðast með hann inn í framtíðina, sem bitnar á þeim sem nú eru virkir greiðendur,“ segir á vef sjóoðsins.

Þá kemur fram, að vegna samspils á milli tekna frá lífeyrissjóði og Tryggingastofnun ríkisins verði skerðing á tekjum lífeyrisþega mun minni en nemi lækkun á greiðslum frá sjóðnum. Áhrifin hafi verið reiknuð út fyrir sjóðinn sem sjá má á töflu á vefsíðu sjóðsins, en miðað er við mismunandi tekjuhópa sjóðfélaga.

„76% sjóðfélaga fá undir 100 þúsund í lífeyri frá lífeyrissjóði á mánuði. Stærstur hluti þessa hóps mun fá lækkun á lífeyri frá sjóðnum að fullu eða mestu leyti bætta frá TR.  Útreiknuð meðalskerðing á þessum hópi yrði 124 kr. á mánuði. Hærri tekjuhópar skerðast meira, en skerðingin er þó innan við 2% í tekjuhæsta hópnum,“ segir á vef Stapa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert