Allir héldu ró sinni

Mynd úr safni
Mynd úr safni

Engin skelfing myndaðist meðal farþega um borð í Boeing-þotu Icelandair sem var lent á Keflavíkurflugvelli fyrir skömmu, samkvæmt upplýsingum mbl.is. Tala farþegar um hversu mjúk lendingin var.

Samkvæmt upplýsingum mbl.is var tilkynnt að snúa þyrfti vélinni við um það bil tveimur tímum eftir brottför. Voru farþegar upplýstir reglulega um gang mála og héldu allir ró sinni á meðan hringsólað var í nokkra klukkutíma til þess að eyða eldsneyti af vélinni. Alls var 191 um borð í vélinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert