Jóhanna fundaði með Füle

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra Ómar Óskarsson

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra átti í dag fund með Stefan Füle, framkvæmdastjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, í Stjórnarráðinu. Meginefni fundarins var að ræða stöðu aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins, en jafnframt var rætt um sameiginlegan vinnuhóp Íslands og ESB um afléttingu gjaldeyrishaftanna.

Füle fundaði fyrr í dag með utanríkisráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, auk þess sem hann heimsótti Hellisheiðarvirkjun og fundaði með fulltrúum sveitarfélaga á Suðurlandi í Árborg.

Füle átti einnig fund með Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra í dag, eins og lesa má í frétt mbl.is: Fagnar stofnun vinnuhóps um afnám gjaldeyrishafta

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert