Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
Úr safni. mbl.is/Júlíus

130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum.

Lögreglan var einnig við umferðareftirlit við vínbúðir í gær. Þar höfðu tveir ökumenn neytt áfengis en voru undir refsimörkum. Þeim var gert að hætta akstri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert