Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg hafði fólkið sjálft samband við neyðarlínuna og óskaði eftir aðstoð og voru björgunarsveitir ræstar út klukkan rúmlega eitt í nótt.

Björgunarsveitarmenn voru sendir upp Hvannárgil og Kattahryggi samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörg þar sem vitað var að fólkið var komið niður fyrir keðjuna við Heljarkamb og því væri ekki þörf á leitarhópum upp frá Skógum. Fólkið fannst síðan rúmum tveimur tímum eftir að leit að því hófst og var það þá statt á gönguleiðinni yfir Útigönguhöfða, nokkur hundruð metra frá Heljarkambi.

Fólkið var í þokkalegu ástandi þegar björgunarsveitarmenn fundu það þrátt fyrir að hafa þá verið á göngu í 13 tíma en það var ágætlega búið og vel nestað. Var parinu fylgt niður í Þórsmörk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert