Maðurinn sem lést í bílslysi við Hörgárbrú í Eyjafirði í gærkvöldi hét Stefán Páll Stefánsson. Hann var tuttugu og eins árs gamall. Stefán Páll var til heimilis í Lyngholti 1 á Hauganesi í Dalvíkurbyggð.
Lögreglunni á Akureyri barst tilkynning um slysið klukkan 23:23 í gærkvöldi. Tildrög þess liggja ekki fyrir en lögreglan og rannsóknarnefnd umferðarslysa vinna að rannsókn slyssins.