Endurgreiðsla hækkuð umtalsvert

Karíus og Baktus
Karíus og Baktus mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að hækka gjaldskrá vegna almennra tannlækninga barna yngri en 18 ára tímabundið um 50%. Gjaldskrárbreytingin gildir frá 1. júlí til næstu áramóta.

Áætlað er að með þessu hækki hlutfall endurgreiðslu raunkostnaðar úr tæpum 42% í að meðaltali í 62,5% og hefur það ekki verið hærra í tæpan áratug. Ákvörðun velferðarráðherra er í samræmi við tillögu starfshóps sem hann skipaði um miðjan maí síðastliðinn, samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu

Síðastliðinn áratug hefur á hverju ári orðið afgangur af þeim fjármunum sem Alþingi hefur ákveðið að verja til tannlækninga sjúkratryggðra hér á landi. Meginástæðan er sú að enginn samningur hefur verið í gildi milli ríkisins og tannlækna um margra ára skeið og hlutfall endurgreiðslu raunkostnaðar vegna tannlækninga barna hefur lækkað verulega.

Í fyrra var sá afgangur sem varð af fjárlagalið tannlækninga nýttur í sérstakt átaksverkefni þar sem börnum tekjulágra foreldra var boðin tannlæknisþjónusta án endurgjalds og nýttu tæplega 800 börn þessa þjónustu.

Vonast til þess að fleiri börn fari til tannlæknis

Áætlað hefur verið að afgangur af fjárlagalið tannlækninga á þessu ári myndi að óbreyttu nema um 174 milljónum króna. Með gjaldskrárhækkuninni frá 1. júlí til 31. desember 2012 munu þessir fjármunir nýtast að fullu. Meginmarkmiðið er að fleiri börn leiti til tannlæknis en ella og er áætlað að þeim fjölgi um að minnsta kosti 10% með þessari breytingu.

Í starfshópi velferðarráðherra sem lagði til þessa breytingu um tímabundna hækkun gjaldskrár Sjúkratrygginga Íslands sátu fulltrúar velferðarráðuneytisins, Sjúkratrygginga Íslands, Tannlæknafélags Íslands, Háskóla Íslands, Embættis landlæknis og heilsugæslunnar og var hópurinn einhuga um tillöguna. Velferðarráðherra hefur veitt starfshópnum umboð til að vinna að tillögum um framtíðarfyrirkomulag tannlækninga barna. Stefnt er að því að ná samningum við tannlækna og að nýtt fyrirkomulag taki gildi í áföngum með bættri þjónustu við börn og barnafjölskyldur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert