Tóku númer af sex bílum

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók skráningarnúmer af sex ökutækjum í nótt vegna vanrækslu á skoðun og vangreiðslu á tryggingum.

Þá kærði lögreglan mann á Laugavegi fyrir vörslu fíkniefna og brot á lögreglusamþykkt. Ennfremur var ökumaður stöðvaður á Lindargötu grunaður um ölvun við akstur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert