Tilkynnt um níu líkamsárásir

Fjölmennt var á tónleikum í miðborginni í gærkvöldi á menningarnótt
Fjölmennt var á tónleikum í miðborginni í gærkvöldi á menningarnótt mbl.is/Andri Karl

Níu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir klukkan tvö í nótt til klukkan sex í morgun. Allar voru þær á miðborgarsvæðinu.

Einn árásarmaður er vistaður í fangageymslu eftir líkamsárás á Laugavegi við Klapparstíg um tvöleytið í nótt. Sá sem fyrir þeirri árás varð var fluttur meðvitundarlaus á slysadeild með sjúkrabifreið.  Í flestum tilfellum voru þessar skráðu líkamsárásir pústrar milli ölvaðra einstaklinga og málsatvik óljós, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Töluverður erill var hjá lögreglu þegar leið á nóttina vegna ölvunar. Fjöldi fólks var á götum miðborgarinnar fram undir morgun.

Öflug löggæsla var í miðborginni í alla nótt og tókst lögreglumönnum margsinnis að stilla til friðar og koma þannig í veg fyrir frekari vandræði, segir í dagbók lögreglunnar eftir nóttina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka