Maður var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fallið fram af svölum húss í Lautasmára í Kópavogi í morgun. Huganlegt er talið að maðurinn hafi fallið fram af 11. hæð hússins.
Málið er í rannsókn og lögregla höfuðborgarsvæðisins gefur ekki frekari upplýsingar um það að svo stöddu.