Rekur í tíu metra ölduhæð

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst rétt fyrir klukkan sjö í morgun neyðarskeyti frá neyðarsendi sem staðsettur var um 80 sjómílur vestur af Færeyjum. Við nánari eftirgrennslan reyndist um 14 metra pólsku skútuna RZESZOWIAK að ræða sem hafði viðkomu í Reykjavík í júlí, hélt þaðan til Grænlands og kom til Dalvíkur í seinni hluta ágúst, að því er fram kemur í frétt frá Landhelgisgæslunni.

Björgunarstjórnstöðinni í Þórshöfn í Færeyjum var gert viðvart og tók hún stjórn aðgerða í sínar hendur. Samningur er á milli LHG og færeyskra björgunaryfirvalda um að þau sjái um leit og björgun innan færeyskrar fiskveiðilögsögu þó að hún falli innan ábyrgðarsvæðis LHG vegna leitar og björgunar.

Í samvinnu höfðu stjórnstöðin og stjórnstöð LHG samband við skip á svæðinu og báðu þau að halda á staðinn. Varðskip og þyrlur voru send af stað frá Færeyjum. Þyrla kom að skipinu upp úr kl. 10:00 en vegna veðurs reyndist ekki mögulegt að hífa fólk úr skútunni. Einnig eru tvö fiskiskip að komast á svæðið. Í undirbúningi var að senda flugvél LHG til leitar ef á þyrfti að halda en þar sem skútan fannst reyndist ekki þörf á því. Tíu eru um borð í skútunni.

Búist er við að veður lægi eftir hádegi og verður þá aftur reynt að ná fólki úr skútunni en hana rekur undan veðri í stormi og um tíu metra ölduhæð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert