Vangaveltur ósmekklegar á þessari stundu

Össur Skarphéðinsson á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Össur Skarphéðinsson á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.

„Þetta eru söguleg og stórpólitísk tíðindi, þótt þau hafi kannski ekki komið mér algjörlega að óvörum,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra um þá tilkynningu Jóhönnu Sigurðardóttur að hún muni hætta í stjórnmálum að kjörtímabilinu loknu.

Össur segir að það hafi þurft sérstakan stjórnmálamann til að leiða ríkisstjórn árið 2009. Stjórnmálamann með óflekkað pólitískt mannorð sem enginn setti spurningu við. Hann segist þess fullviss að Jóhanna muni í kjölfar síns feril hljóta mjög burðugan sess í Íslandssögunni. „Ekki bara vegna þess að hún verður forsætisráðherra fyrst kvenna, og ekki heldur bara vegna þess að allt bendir til þess að hún verði í forystu fyrstu vinstristjórnarinnar sem situr heilt kjörtímabil. Ég held að hennar verði fyrst og fremst minnst fyrir það að hún var forsætisráðherra ríkisstjórnar sem leiddi Ísland út úr kreppunni.“

Efnahagslegt kraftaverk á Íslandi

Sjálfur er Össur nú staddur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. „Það fyrsta sem er á vörum sérhvers utanríkisráðherra sem ég hitti, og ég á fundi með þeim mörgum þessa dagana, eru spurningar um það sem þeir kalla efnahagslegt kraftaverk á Íslandi. Þannig að hvað sem líður slagsmálum dagsins og angist andstæðinganna, sem oft brýst út með sérkennilegum hætti gagnvart henni, þá geta þeir aldrei frá henni tekið að það var undir hennar forystu sem Ísland náði sér á strik. Það er hennar stóra afrek,“ segir Össur.

Hvað varðar komandi formannsslag í Samfylkingunni segist Össur ekki geta sagt til um hvort hann verði harður, en þar verði margir eflaust til kallaðir. Sjálfur stendur hann við fyrri orð sín um að bjóða sig ekki fram. Kominn sé tími á kynslóðaskipti í flokknum. 

„Ég hef margoft sagt að sá kafli í lífi mínu er búinn. Ég var stoltur af því á sínum tíma að leiða Samfylkinguna í 32% bæði í sveitarstjórnarkosningum og þingkosningum, en það endurtekur enginn söguna. Það væri stílbrot og ég hef hvorki áhuga né vilja til þess.“

Og Össur vill ekki svara því hvern hann sjái sjálfur fyrir sér sem næsta formann Samfylkingarinnar. „Mér finnst það ósmekklegt á þessum degi, þegar Jóhanna kynnir ákvörðun sína, að menn séu með vangaveltur um það hvort heldur er fyrir sína hönd eða einhverra annarra.“

Össur og Jóhanna á Alþingi.
Össur og Jóhanna á Alþingi. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert