Tveir að rækta undir sama þaki

AFP

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór á stúfana í Kópavogi í fyrradag eftir að hafa fengið ábendingar um megna kannabislykt sem virtist koma frá tilteknu fjölbýlishúsi.

Eftir smárannsóknarvinnu ákváðu lögreglumennirnir að spyrjast fyrir í einni íbúð hússins en henni fylgdi bílskúr sem talinn var líklegur vettvangur ræktunar. Eigandi bílskúrsins, maður á fertugsaldri, kannaðist ekki við neitt en gat hins vegar ekki sýnt lögreglumönnum bílskúrinn þar sem hann hafði orðið fyrir því óláni að týna bílskúrshurðaopnaranum.

Með 35 plöntur í bílskúrnum

Til að villa um fyrir lögreglumönnum gat hann þess hins vegar að annar íbúi í húsinu, maður á þrítugsaldri, væri miklu líklegri en hann til að vera að rækta efni. Eftir nokkurt þóf gaf maðurinn sig þó og opnaði bílskúrinn.

Í fyrstu var ekki annað að sjá en að um venjulegan bílskúr væri að ræða. Annað kom hins vegar á daginn því lögreglumennirnir á vettvangi höfðu mikla reynslu af slíkum málum og sáu strax að ekki var allt með felldu. Þeir höfðu rétt fyrir sér því eftir nokkra leit fannst ræktun með 35 plöntum.

Annar með 73 plöntur í ræktun í kjallaranum

Lögreglumennirnir voru þó ekki alveg hættir því þeir ákváðu að kanna einnig með hinn áðurnefnda íbúa hússins. Honum brá nokkuð við komu lögreglu og vísaði þeim á 73 kannabisplöntur sem hann var að rækta í kjallara hússins. Við yfirheyrslur kom í ljós að mennirnir vissu ekki af ræktun hvor annars þótt þeir væru við sömu iðju undir sama þaki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert