Jóhanna að heiman á afmælinu

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, verður sjötug á morgun. Samkvæmt upplýsingum um forsætisráðuneytinu verður hún að heiman á afmælinu.

Jóhanna sat ríkisráðsfund á Bessastöðum á mánudaginn og stýrði ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. Hún er ekki við vinnu í dag og fengust ekki upplýsingar úr ráðuneytinu um hvernig hún ætlaði að verja afmælisdeginum.

Jóhanna lýsti því yfir í síðustu viku að hún myndi hætta í stjórnmálum í lok þessa kjörtímabils og myndi ekki sækjast eftir endurkjöri sem formaður Samfylkingarinnar.

Jóhanna var kjörin formaður Samfylkingarinnar árið 2009. Hún hefur verið alþingismaður síðan 1978 eða í 34 ár.  Jóhanna var félagsmálaráðherra 1987-1994 og 2007-2009 og forsætisráðherra síðan 2009.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert