Ráðherra yrði settur af

Guðni Ágústsson
Guðni Ágústsson

„Hvað myndi gerast í Noregi ef fjármálaráðherra í ríkisstjórn Jens Stoltenbergs hefði heima og erlendis lýst því yfir að norska krónan væri skaðleg norskum hagsmunum og ónýtur gjaldmiðill? Forsætisráðherrann hefði umsvifalaust sett viðkomandi ráðherra af fyrir sólarlag“, segir Guðni Ágústsson fv. landbúnaðaráðherra í grein í Morgunblaðinu í dag.

Og Guðni heldur áfram: Hvað myndi gerast í Noregi ef Stoltenberg sjálfur færi háðsorðum um norsku krónuna? Norska Stórþingið myndi setja hann af samdægurs. Hvað myndi gerast í Þýskalandi ef fjármálaráðherra í ríkisstjórn Angelu Markel segði framtíð evrunnar brostna? Sá hinn sami tæki einnig pokann sinn.

Í grein sinni segir Guðni Ágústsson m.a.: „Hér á Íslandi þykir ekkert athugavert við það að ráðherrar og sérstaklega samfylkingarráðherrar, bæði forsætisráðherra landsins Jóhanna Sigurðardóttir og nú fjármálaráðherrarnir Oddný Harðardóttir og Katrín Júlíusdóttir, fari í fjölmiðla og fordæmi krónuna og segi gjaldmiðilinn ónýtan. Þetta gera þeir einnig Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Árni Páll Árnason formannsefni, það gerði einnig Björgvin Sigurðsson. Þessi ,,snilldarviðtöl" þessara ráðherra eru síðan tíunduð í sterkum fjölmiðlum um allan heim og skaða hagsmuni íslensku þjóðarinnar“.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert