Umfangsmesta æfing sem haldin hefur verið

Frá flugslysaæfingunni í dag.
Frá flugslysaæfingunni í dag. mbl.is/Ómar Óskarsson

Brátt lýkur umfangsmestu björgunaræfingu sem haldin hefur verið hérlendis á Reykjavíkurflugvelli. Líkt var eftir brotlendingu flugvélar með 100 manns innanborðs. Isavia efndi til hennar í samstarfi við alla viðbragðsaðila sem hlutverki gegna í flugslysaáætlun Reykjavíkurflugvallar.

630 manns tóku þátt

Flugslysaáætlun segir fyrir um skipulag og stjórnun aðgerða í kjölfar flugslyss á eða við flugvöllinn. Æfingin var almannavarnaæfing þar sem allir viðbragðsþættir vegna flugslyss voru prófaðir. Líkt var eftir brotlendingu flugvélar með um 100 flugfarþegum og æfð samvinna viðbragðsaðila með áherslu á samhæfingu og virkni áætlunarinnar.

Alls tóku 630 manns þátt í áætluninni og er það umfangsmesta æfing sem haldin hefur verið hérlendis.

Viðbragðaðilar voru flugvallarstarfsmenn, lögregla, slökkvilið, sjúkraflutningaaðilar, heilbrigðisþjónusta, björgunarsveitir, Rauðikrossinn, prestar, rannsóknaraðilar o.fl. ásamt samhæfingarstöð almannavarna og sjálfboðaliðum sem léku flugfarþega og aðstandendur.

Líkt og raunverulegt hópslys

Viðbragðsaðilar þurftu að leysa fjölbreytt verkefni á slysavettvangi og við greiningu, flutning og aðhlynningu fórnarlamba og aðhlynningu aðstandenda. Aðgerðarstjórn almannavarna á höfuðborgarsvæðinu stýrir aðgerðum í umdæminu og var samhæfingarstöðin í Skógarhlíð virkjuð í æfingunni til aðstoðar við vettvangsstjórn. Þá tók um 200 heilbrigðisstarfsmenn á Landsspítala-háskólasjúkrahúsi virkan þátt í ummönnun slasaðra sem voru fluttir á bráðamóttöku líkt og um raunverulegt hópslys hefði væri að ræða.


Skipulag æfingarinnar miðaðist við endurskoðaða og nýuppfærða flugslysaáætlun fyrir Reykjavíkurflugvöll og verður lærdómur sem dreginn verður af æfingunni færður í áætlunina og hún formlega gefin út í framhaldi þess.

„Reynslan sýnir að hætta á hópslysum á borð við flugslys er afar lítil en nauðsynlegt er að viðbragðsaðilar æfi áætlanir með reglubundnum hætti svo bregðast megi fumlaust við ef slys kynni að bera að höndum“, sagði Árni Birgisson samræmingarstjóri flugvalla hjá Isavia.

„Æfingin virðist hafa tekist í flesta staði mjög vel en henni líkur síðar í dag og er öflugt framlag allra þátttakenda mikils metið,“ segir Árni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert