Leynisamkomulag stjórnarflokkanna ólíðandi

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands gagnrýnir vinnubrögð ríkisstjórnarflokkanna.
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands gagnrýnir vinnubrögð ríkisstjórnarflokkanna.

Ólíðandi er að ríkisstjórn krefjist þess af æðstu embættismönnum og forstöðumönnum ríkisstofnanna að þeir starfi ekki samkvæmt gildandi lögum. Þetta segir miðstjórn Alþýðusambands Íslands, en á fundi hennar í dag kom fram hörð gagnrýni á vinnubrögð stjórnarflokkanna.

Tilefnið er ummæli sem Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG, lét falla á Alþingi í gær og ASÍ segir afhjúpa ámælisverð vinnubrögð ríkisstjórnarinnar. Álfheiður sagði að þegjandi samkomulag ríkti um að ríkisfyrirtæki héldu að sér höndum í virkjanamálum, á meðan rammaáætlun hefði ekki verið afgreidd á Alþingi. 

Þetta segir miðstjórn ASÍ ólíðandi. „Það að í gildi sé eitthvert leynisamkomulag milli stjórnarflokkanna sem  hér um ræðir þýðir í raun verkstopp og að meiriháttar fjárfestingar sem stjórnvöld hafa rætt um að væru í farvatninu hafi í reynd verið settar á ís fyrir alllöngu,“ segir í yfirlýsingu sem send var út eftir fund miðstjórnar í dag.

Slíkt sé ábyrgðaleysi í ljósi þess mikla atvinnuleysis og tekjusamdráttar sem hér hefur orðið.

Álfheiður Ingadóttir.
Álfheiður Ingadóttir. mbl.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert