Íslenskur konditor heiðraður

Sigurður (fyrir miðju) tekur við viðurkenningarskjalinu frá stjórn U.I.P.C.G.
Sigurður (fyrir miðju) tekur við viðurkenningarskjalinu frá stjórn U.I.P.C.G.

Sigurður Már Guðjónsson, formaður Konditorsambandsins, var á dögunum sæmdur heiðursmerki UIPCG, sem eru alþjóðleg samtök konditormeistara.

Í frétt á vefsíðunni freisting.is segir að um mikinn heiður sé ræða og ánægjulegt að íslenskur konditor sé heiðraður fyrir gott og óeigingjarnt starf í þágu fagsins af alþjóðlegum samtökum.

Þar segir að Sigurður Már hafi meðal annars átt frumkvæði að stofnun Konditorsambandsins og haft forgöngu um að skipuleggja konditornámskeið á vegum Landssambands bakarameistara síðustu árin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert