Tveir menn sem voru um borð í fisflugvél sem brotlenti í dag skammt frá fisflugvellinum Sléttu sem er á Njarðvíkurheiði skammt við Seltjörn voru úrskurðaðir látnir á slysstað.
Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning um flugslysið kl. 15.20. Lögreglan fór á vettvang ásamt sjúkrabifreið og lækni. Þá var slökkvibifreið send á vettvang. Rannsóknarnefnd flugslysa var tilkynnt um slysið.
Fisflugvél hafði brotlent í mólendi um 1 km SA af fisflugvellinum. Tveir menn voru í vélinni og voru þeir báðir úrskurðaðir látnir á vettvangi.
Ekki er unnt að skýra nánar frá aðdraganda slyssins né frá nöfnum hinna látnu að svo komnu. Lögreglan á Suðurnesjum vinnur að rannsókn málsins ásamt Rannsóknarnefnd flugslysa.