200 bíða eftir að komast í afeitrun

Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ.
Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ. mbl.is/Ómar

Um 200 manns eru á biðlista eftir að komast í afeitrun á Sjúkrahúsinu Vogi og í meðferðarúrræði að því loknu. Þetta skrifar Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, í pistli sem er að finna á vef samtakanna.

„10 dagar á Vogi og 28 daga meðferð að því loknu kostar ríkissjóð aðeins rúmar 400 þúsund krónur; eða um 11 þúsund krónur á dag,“ segir Gunnar. 

Hann bendir á að miðað við bandarískar rannsóknir sé kostnaður samfélagsins við að sinna ekki þessum sjúklingahópi um 15,4 milljónir króna á dag; kostnaður vegna óvirkni fólksins, notkunar þess á lyfjum og annarri læknis- og helbrigðishjálp, kostnaður vegna afbrota, slysa og félagslegrar aðstoðar.

„Með meðferð sparast þessir fjármunir; 15,4 milljónir á dag eru um 5,6 milljarðar á ári. Sparnaður kæmi ekki allur fram strax; en miðað við áætlanir Bandaríkjamanna má gera ráð fyrir að um 2 milljarðar af þeirri upphæð kæmu fram innan árins. Það er meira en þreföld sú upphæð sem ríkið leggur til starfsemi SÁÁ,“ skrifar Gunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert