Von á 55 m/s í hviðum í dag

Veðurstofan varar við norðan vonskuveðri á öllu landinu næsta sólarhring. Búast má við norðanstormi með vindhraða á bilinu 20-28 m/s um allt land og mjög hvassar vindhviður, allt að 55 m/s, við fjöll, einkum á sunnanverðu landinu frá Snæfellsnesi til Austfjarða. Spáð er talsverðri ofankomu á Norður og Austurlandi í dag.

Ekkert ferðaveður verður næsta sólarhring. Vindur fer að ganga niður á öllu landinu um hádegi á morgun, laugardag. Áfram verður þó víða hvasst fram á kvöld, en búist er við að lægi verulega um land allt aðfaranótt sunnudags.

 Á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni er búist við stormi í allan dag, en dregur lítið eitt úr vindi um hádegi á morgun, laugardag. Lægir síðan aðfaranótt sunnudags.

 Fólk er því beðið um að fylgjast vel með veðurspám.

Sjá veðurvef mbl.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert