Fullt hús á borgarafundi

Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, er á borgarafundi Hagsmunasamtaka heimilanna sem hófst kl. 20 í Háskólabíói. Fjölmennt er á fundinum.

Steingrímur er flutningsmaður frumvarps til laga um neytendalán sem nú liggur fyrir Alþingi og samtökin hafa gert alvarlegar athugasemdir við. Aðrir frummælendur á fundinum í kvöld eru Guðmundur Ásgeirsson varaformaður HH, Þórður Heimir Sveinsson hdl. og Pétur H. Blöndal alþingismaður.

Tilefni fundarins er málsókn gegn Íbúðalánasjóði vegna verðtryggðs fasteignaláns sem samtökin standa að, en á fundinum verður einnig fjallað um ofangreint frumvarp um neytendalán.

Í pallborði sitja auk fulltrúa HH, alþingismenn frá öllum stjórnmálaflokkum á þingi, Gísli Tryggvason talsmaður neytenda og Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert