Rjúpan í ginið á villiketti?

mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Jörðin Klettur í Geiradal bætist á listann yfir jarðir í Reykhólahreppi þar sem skotveiði er bönnuð. „Öll hlið að bænum eru vel merkt að óheimil sé öll skotveiði á jörðinni en aldrei er góð vísa of oft kveðin,“ segir Hreggviður Þorsteinsson, sem er í forsvari fyrir Klett, í viðtali á vef Reykhólahrepps.

 Fleiri en skotveiðimenn stunda þó rjúpnaveiði hérlendis.

 „Það hefur verið hópur af rjúpum heima á hlaði hjá okkur til margra ára, nema hvað svo brá við að þessu sinni að rjúpa á hreiðri með 12 eggjum hvarf og engar rjúpur sáust heima við hús í ár,“ segir Hreggviður. „Náttúrufræðistofnun heldur helst að rjúpan hafi lent í kjaftinum á einhverju villidýri. Gæti jafnvel hafa verið villiköttur en þá höfum við orðið vör við öðru hverju“, segir hann.

Fréttin á vef Reykhólahrepps í heild.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert