Forsetahjónin heimsækja bændur

Frá fjárleit á Þeistareykjum
Frá fjárleit á Þeistareykjum Björgunarsveitin Ársól Reyðarfirði.

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú, heimsækja í dag og á morgun sauðfjárbændur í Þingeyjarsýslu, Skagafirði og Húnaþingi sem glímt hafa við afleiðingar veðuráhlaupsins í vetrarbyrjun og háð harða baráttu við að ná fé úr fönn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu.

„Margir hafa misst verulegan hluta bústofns síns. Þá munu forsetahjónin heimsækja tvo grunnskóla til sveita sem og Framhaldsskólann á Laugum og Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki.

Í gær voru forsetahjónin heiðursgestir á tónleikum í Hofi á Akureyri þar sem fjöldi söngvara og tónlistarfólks lagði lið landssöfnun í þágu sauðfjárbændanna. Forseti flutti ávarp á tónleikunum og hvatti til samstöðu landsmanna með bændum sem glímdu við mikla erfiðleika.

Heimsóknin hófst í morgun á Húsavík þar sem fulltrúar björgunarsveita, Rauða krossins, Samstarfshóps um áfallahjálp, Landssambands sauðfjárbænda og fleiri aðilar lýstu glímunni við hamfarirnar í vetrarveðrinu. Fundinum stjórnaði Svavar Pálsson sýslumaður sem á sínum tíma stýrði aðgerðum.

Frá Húsavík héldu forsetahjónin í morgun til Reykjahlíðarskóla við Mývatn og upp úr hádeginu munu þau heimsækja bændur á Skútustöðum II og í Baldursheimi. Þaðan fara þau svo í Framhaldsskólann á Laugum og ræða við nemendur og skólastjórn,“ segir í tilkynningu.

Á morgun munu forsetahjónin heimsækja bændur á Brúnastöðum og Þrasastöðum í Fljótum í Skagafirði og Grunnskólann austan Vatna í Sólgörðum. Um hádegið koma þau í Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki, snæða hádegisverð á heimavistinni og ræða við nemendur á sal. Frá Sauðárkróki halda þau síðan að Stóru-Giljá í Húnaþingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert