Sakar þingmenn um „skrílslæti“

Birna Lárusdóttir
Birna Lárusdóttir

„Ég hef fylgst með, einkanlega þeim sem sitja hér á aftasta bekk í dag, taka sérstaklega fyrir einn þingmann úr röðum Framsóknarflokksins. Mér hefur þótt það sem ég hef heyrt og ég hef séð ljótt,“ sagði Birna Lárusdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í kvöld. Hún sakaði þingmenn um „skrílslæti“.

Umræða hefur staðið í allan dag um tillögur stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá. Í kvöld bað Sigurður Ingi Jóhannsson, þingaður Framsóknarflokks, um orðið til að ræða um fundarstjórn forseta.

„Ég hef orðið vitni að því ítrekað í dag að hér er verið að hæðast að þingmönnum sem koma hér upp og ræða málefnalega um stjórnarskrá Íslands. Jafnvel er gengið svo langt að menn sitja í þingsal og senda inn ógeðfelld skilaboð á Facebook um hvað menn eru að segja hér í ræðustól. Mér er nóg boðið. Fólk sýnir sínu eigin starfi lítilsvirðingu og stjórnskránni. Það er lítilmótlegt. Þetta gengur ekki lengur. Menn þurfa að fara að taka sjálfa sig taki og virða þá málefnalegu umræðu sem hér verður að fara fram um stjórnarskrána,“ sagði Sigurður Ingi.

Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokks, tók undir þessi orð og sagðist hafa orðið vitni að því að „flissað væri í þingsal“ og að verið væri að hæðast að þingmönnum.

Lúðvík Geirsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að gera yrði þá kröfu til þingmanna að þeir færu ekki með fleipur og ósannindi í umræðum um þetta mikilvæga mál. Þingmenn yrðu að ræða um stjórnarskrána af sanngirni og heiðarleika.

„Það hefur vakið vægast sagt furðu mína hér í dag að sitja á næstaftasta bekk og hlusta á, ég ætla að leyfa mér að segja, vægast sagt skrílslæti á aftasta bekk. Ég sit hér nýr þingmaður og er að reyna að átta mig á hverjar eru venjurnar og hefðirnar hér inni og ef þetta eru þær þá hugnast mér þær ekki,“ sagði Birna Lárusdóttir.

Eftir ræðu Birnu gerði Ragnheiður Ríkharðsdóttir, varaforseti Alþingis, stutt hlé á þingfundi. Umræður um frumvarpið héldu síðan áfram.

Ekki kom nákvæmlega fram á þingfundinum hvaða ummæli á Facebook þingmenn áttu við, en Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, sem situr fyrir aftan Birnu í þingsal, skrifaði fyrr í dag á Facebook-síðu sína: „Vigdís Hauks býsnast yfir „þessum svokölluðu þriðju kynslóðar mannréttindum“ og spyr hvað sé þjóð?

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert