Baldur siglir til Eyja

Breiðafjarðaferjan Baldur.
Breiðafjarðaferjan Baldur. mbl.is/Sigurður Bogi

Engar ferjusiglingar eru þessa dagana yfir Breiðafjörð milli Brjánslækjar og Stykkishólms þar sem Baldur siglir í stað Herjólfs milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Baldur siglir frá Eyjum klukkan 17.30 í dag.

Vestmannaeyjaferjan er nú í slipp, en skrúfur skipsins eru laskaðar eftir að árekstur við grjótgarðinn við Landeyjarhöfn. Íbúar í suðursvæði Vestfjarða eru að vonum uggandi vegna þessa og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, er afar áhyggjufull vegna ástandsins, að því er segir í frétt á Bæjarins besta.

„Við höfum að sjálfsögðu mikla samúð með Vestmannaeyingum og skiljum að nauðsynlegt sé að hafa siglingar milli lands og Eyja. Þetta ítrekar mikilvægi þess að ný Vestmannaeyjaferja verði keypt hið snarasta til að leysa Herjólf af hólmi enda höfnin ekki hönnuð með núverandi skip í huga. Við eigum hins vegar mjög erfitt með að vera án Baldurs, nú um hávetur þegar allra veðra er von. Þetta er eins og ísköld, blaut tuska framan í andlitið á íbúum hér á þessu svæði frá Vegagerðinni,“ segir Ásthildur í samtali við blaðið.

„Vegagerðin heldur því fram að þetta taki um 10 daga en ég hef miklar áhyggjur að Baldur verði í burtu í margar vikur vegna umfangs skemmdanna á Herjólfi. Það yrði hræðilegt. Fyrirtækin á svæðinu treysta á Baldur með daglega flutninga með fisk og aðrar vörur til og frá svæðinu.“ Ásthildur segir samgöngur með Baldri afar mikilvægar atvinnulífinu og íbúum, sérstaklega þegar litlar sem engar bætur eru gerðar á handónýtum vegum til og frá Vestfjörðum. Tíðin undanfarið hefur verið þannig að ófært verður á augabragði þegar snjóar og hreyfir vind og ekki þjónusta á vegunum alla daga. 

Fréttin í heild

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert