Forsvarsmenn skíðasvæðis höfuðborgarsvæðisins segja stefnt að opnun skíðasvæðisins í Bláfjöllum um helgina.
Á vef svæðisins kemur fram að spáð sé snjókomu í Bláfjöllum næstu daga en þar hefur snjóað töluvert að undanförnu.
Nýjar upplýsingar verða settar inn á vef skíðasvæðanna á föstudag.