Reykjavík sækir um World Outgames-leikana (myndband)

Jón Gnarr tekur ávallt virkan þátt í Hinsegin dögum í …
Jón Gnarr tekur ávallt virkan þátt í Hinsegin dögum í Reykjavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Valið stendur á milli Reykjavíkur og Miami varðandi það hvor borgin verður mótsstaður World Outgames-leikanna árið 2017. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi GLISA (Gay and Lesbian International Sports Association) sem haldinn var í gær. World Outgames er íþrótta-, menningar- og mannréttindahátíð sem stendur yfir í 10 daga fjórða hvert ár. Hátíðin er haldin á vegum GLISA og er opin öllum án tillits til kynhneigðar, segir í frétt frá Reykjavíkurborg.

 Auk Reykjavíkur sóttu borgirnar Rio de Janeiro, Róm, Denver og Miami um að halda leikana. GLISA hefur ákveðið að valið standi einungis á milli Reykjavíkur og Miami og verður tilkynnt um hvor borgin hreppir leikana 2017 við opnun leikanna í Antwerpen í Belgíu næsta sumar.

 „Valið stendur á milli norðurljósa í Reykjavík eða sólarinnar í Miami. Nú er þetta orðið verulega spennandi,“ segir Ingi Thor Jónsson, viðburðastjóri Ráðhúss Reykjavíkur í fréttatilkynningu, en hann hefur verið í forsvari fyrir umsókn Íslands til GLISA.

 Fyrstu World Outgames-leikarnir voru haldnir sumarið 2006 í Montreal í Kanada. Þar tóku 8.000 íþróttamenn þátt í yfir 30 íþróttagreinum. Mannréttindaráðstefna leikanna var sótt af 1.600 þátttakendum og um 1.200 manns tóku þátt í hinum ýmsu menningar- og listviðburðum sem boðið var upp á. Næstu leikar fóru fram í Kaupmannahöfn sumarið 2009 og voru íþróttaiðkendur þá alls um 5.000 og þátttakendur í mannréttindaráðstefnu leikanna 1.000 talsins. Næstu leikar munu fara fram í Antwerpen í Belgíu sumarið 2013 og er búist við miklum fjölda gesta.

 Þátttakendur í leikunum koma frá öllum heimshornum. Þar koma saman íþróttamenn, listamenn og fagfólk á sviði mannréttinda - margir frá löndum þar sem samkynhneigð er enn ólögleg og falin.

Hægt að bjóða upp á keppni í 30 íþróttagreinum

 Talið er að hægt verði að bjóða upp á 30 íþróttagreinar og keppnir í Reykjavík ásamt mjög kraftmiklum lista- og menningarviðburðum. Þá er enginn vafi á því að ráðstefnuaðstaðan í Reykjavík getur vel mætt þeim kröfum sem gerðar eru vegna mannréttindaráðstefnunnar sem haldin er í tengslum við leikana.

Breiður hópur fólks hefur unnið að umsókninni en reiknað er með að bæði Reykjavíkurborg og ríkið komi að undirbúningi og fjármögnun leikanna og leggi m.a. til aðstöðu undir þá en sérstakt fyrirtæki mun hafa umsjón með mótshaldinu.

 Höfuðborgarstofa, ÍTR, mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar og Ráðstefnuborgin Reykjavík standa að baki umsókninni, auk Samtakanna ´78, og fleiri standa að baki umsókninni.

 Gert hefur verið myndband til að kynna Reykjavík sem mótsstað. Reykjavík Bid for World Outgames 2017.

Hinsegin dagar í Reykjavík.
Hinsegin dagar í Reykjavík. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert