Meðferð græðara hefur enga virkni umfram lyfleysu

Þingsályktunartillaga um niðurgreiðslu hins opinbera á meðferð græðara liggur fyrir …
Þingsályktunartillaga um niðurgreiðslu hins opinbera á meðferð græðara liggur fyrir þinginu. mbl.is/Golli

Sálfræðingafélag Íslands beinir þeim tilmælum til þingmanna að samþykkja ekki þingsályktunartillögu um að fela velferðarráðherra að skipa starfshóp sem kanna á hvort niðurgreiða skuli heildrænar meðferðir græðara til jafns við aðra heilbrigðisþjónustu og/eða undanþiggja þær greiðslu virðisaukaskatts.

„Það er með öllu óásættanlegt að skattfé almennings verði notað til að greiða niður meðferðir sem ítrekað hefur verið sýnt fram á með rannsóknum að hafi enga virkni umfram lyfleysu. Sér í lagi þegar þjónusta heilbrigðisstarfsstétta eins og sálfræðinga og tannlækna er ekki niðurgreidd þrátt fyrir að rannsóknir hafi margoft sýnt fram á gagnsemi þeirra aðferða sem þessar starfsstéttir nota alla jafna,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Í tilkynningunni kemur fram að margt hafi verið að athuga við málflutning eins flutningsmanns tillögunnar í Kastljósi hinn 3. desember. Vill Sálfræðingafélag Íslands  sérstaklega mótmæla þeim fullyrðingum þingmanns í Kastljósi að ekki sé hægt að sanna að samtalsmeðferð sálfræðinga virki og að slík meðferð feli varla í sér lækningu heldur slái einungis á einkenni.

„Til upplýsingar hafa t.d. 350 rannsóknir staðfest gagnsemi hugrænnar atferlismeðferðar sem er meðferð sem sálfræðingar nota í miklum mæli. Samtalsmeðferðir eins og áðurgreind meðferð geta einmitt læknað fólk af geðröskunum en ekki einungis slegið á einkenni. Með þessum ummælum eru vísindalegar rannsóknir ekki aðeins hunsaðar heldur vegið að starfsheiðri sálfræðinga.

Félagið hvetur þingmenn til að setja í forgang niðurgreiðslu gagnreyndra meðferða sálfræðinga, sem rannsóknir hafa sýnt fram á að eru þjóðhagslega hagkvæmar,“ segir í tilkynningu Sálfræðingafélags Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert