Sveitarfélög jákvæðari gagnvart „snjóbyssu“

Gott skíðafæri var í Bláfjöllum í dag.
Gott skíðafæri var í Bláfjöllum í dag. Árni Sæberg

Gott skíðafæri var á öllum helstu skíðasvæðum landsins í dag. Bláfjöll opnuðu á fimmtudag og samkvæmt rekstrarstjóra var færið eins og best verður á kosið á troðnum slóðum í fjallinu. 

Bláfjöll opnuðu á fimmtudag og voru opin alla helgina.  

„Ef árið 2010 er undanskilið höfum við opnað fyrir vel jól á undanförnum árum,“ segir Einar Bjarnason rekstrarstjóri Bláfjalla. Hann segir að tiltölulega fáir hafi komið í fjallið um helgina en á von á mikilli fjölgun í næstu viku. „Þá hefjast skólaleyfin auk þess sem margir klára prófin um það leyti.“ segir Einar. 

Hann segir nægan snjó í fjallinu sem stendur en reynslan sýni að hann geti horfið eins skjótt og hann kom. Hann segist finna fyrir auknum áhuga hjá sveitarfélögum um að leggjast í kaup á svokallaðri „snjóbyssu“ sem framleiðir snjó.

„Þetta veltur á sveitafélögunum en við finnum fyrir jákvæðari umræðu um þetta hjá sveitastjórnarmönnum. Skýrslur sýna að þessar snjóbyssur eru ekki að skaða á nokkurn hátt og ef hægt er að tala um einhver vandamál, þá eru það lúxus vandamál sem auðvelt er að leysa,“ segir Einar.     

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert