Tæp 60% kjósenda Samfylkingar treysta Árna Páli Árnasyni best til að gegna formennsku í flokknum. Þetta eru niðurstöður skoðanakönnunar MMR sem gerð var fyrir Viðskiptablaðið.
57,5% kjósenda Samfylkingarinnar styðja Árna Pál en 42,5% styðja Guðbjart Hannesson velferðarráðherra. Þeir Árni og Guðbjartur hafa einir lýst yfir framboði til embættisins en formaður Samfylkingarinnar verður kjörin í upphafi næsta árs.