Umræðu um rammaáætlun frestað

mbl.is/Ómar

Umræðu um rammaáætlun á Alþingi hefur verið frestað en þingfundi var slitið kl. 22.18 í kvöld. Samkvæmt upplýsingum mbl.is var maður fluttur á sjúkrahús skömmu áður á fundinum var slitið, en hann hafði skaðað sig inni á salerni skammt frá þingpöllunum.

Ekki hafa fengist frekari upplýsingar um atvikið.

Umræða um rammaáætlun hefur staðið yfir í allan dag. Samkomulag þingflokkanna um þinglok liggur ekki fyrir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert