„Mikill sjónarsviptir að Lilju“

Samstaða
Samstaða

„Það verður mikill sjónarsviptir að Lilju Mósesdóttur af Alþingi þar sem hún hefur unnið mikilvægt starf og málflutningur hennar hefur vakið verðskuldaða athygli og haft mikil áhrif,“ segir í yfirlýsingu stjórnar Samstöðu vegna ákvörðunar Lilju um að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi þingmennsku.

Stjórnin segir að Lilja hafi komið fram með lausnir á raunverulegum vandamálum almennings og efnahagslífs og þorað að tala um hlutina eins og þeir séu. „Sú vinna og þær lausnir sem Lilja hefur lagt til eru enn til staðar hjá Samstöðu og í boði fyrir íslensk heimili.“

Þá er því fagnað að Lilja hafi ákveðið að vera áfram innan raða flokksins þótt hún fari ekki fram til Alþingis. „Margir einstaklingar hafa sýnt áhuga á framboði fyrir Samstöðu fyrir næstu alþingiskosningar og framundan er vinna við að setja fram lista í öllum kjördæmum. Framundan er mikið verk að vinna fyrir heimilin og landsmenn og vill Samstaða gefa kjósendum valkost í næstu alþingiskosningum á góðu fólki sem er tilbúið í þá vinnu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert