Hnífsdalsvegur illa farinn eftir óveðrið

Vegagerðin hefur sett upp keilur til þess að vara vegfarendur …
Vegagerðin hefur sett upp keilur til þess að vara vegfarendur við á Hnífsdalsvegi. Af vef BB

Hnífsdalsvegur er illa farinn eftir óveðrið sem gekk yfir Vestfirði um áramótin. Skörð hafa myndast í veginn í veðurofsanum og ljósastaurar brotnað, samkvæmt frétt á vef BB.

Skörð eru á tveimur stöðum sem ná alveg að malbiki og á einum stað er hrunið undan malbikinu eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Tveir ljósastaurar hafa brotnað við veginn og liggja ónýtir í vegkantinum eftir storminn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert