Sigurður samdi við Kaupþing

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings.
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings. mbl.is/Kristinn

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, hefur samið við slitastjórn Kaupþings um að greiða félaginu um 130 milljónir króna.

Þetta kemur fram í frétt á Vísi í dag.

Kaupþing stefndi Sigurði vegna skuldamáls í ágúst árið 2010 og var það þingfest þann 7. september sama ár þar sem Sigurður krafðist sýknu. Málið var svo tekið fyrir í byrjun árs 2011 en því ávallt frestað á þeim grundvelli að aðilar væru að leita sátta í málinu.

Sú sátt náðist þann 10. janúar síðastliðinn, eða um tveimur og hálfu frá því að stefnan var birt. Sigurður samþykkti að greiða upphæðina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert