Leiguverð hækkaði um 6,4%

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 118,1 stig í desember 2012 og lækkaði um 0,8% frá fyrra mánuði. Síðastliðna þrjá mánuði lækkaði vísitalan um 0,5% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,4%.

Þetta kemur fram í upplýsingum Þjóðskrár Íslands.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir sex flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert