Fundu manninn heilan á húfi

Mjög erfiðar aðstæður voru í fjallinu eins og þessi mynd …
Mjög erfiðar aðstæður voru í fjallinu eins og þessi mynd sýnir. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar fundu um kl. 20:30 mann sem leitað hefur verið á Esju síðan síðdegis í dag. Var hann staddur efst í Gunnlaugsskarði og í ágætu ástandi miðað við aðstæður. Björgunarmenn fylgja honum niður af fjallinu.

Leitin hefur verið afar umfangsmikil og aðstæður erfiðar en mikið kapp var lagt á að finna manninn fyrir nóttina. Um 120 björgunarsveitamenn frá höfuðborgarsvæðinu, Borgarfirði og Suðurnesjum tóku þátt í dag og í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert