„Hvað hafa þær að fela?“

mbl.is/Skapti Hallgrímsson

 Snorri Már Skúlason, deildarstjóri upplýsinga- og kynningarmála hjá ASÍ, spyr í pistli á vef ASÍ hvað verslanir sem hafa hætt þátttöku í verðkönnunum ASÍ hafi að fela.

„Verslanir Hagkaups, Kosts, Nóatúns og Víðis neita allar að veita neytendum eðlilegar og sjálfsagðar upplýsingar um verðlag í verslunum sínum með því að vísa verðtökufólki frá Verðlagseftirliti ASÍ út úr verslununum sínum. Ástæða er til þess að vara neytendur við að versla í þessum verslunum því ætla má að þær leiti skjóls til verðhækkana í því að útiloka fulltrúa neytenda úr verslunum sínum og gera þeim ókleift að sinna sjálfsögðu aðhalds- og upplýsingahlutverki sínu.

Verðlagseftirlitið gegnir nú mikilvægu hlutverki við eftirfylgni með samkomulagi sem ASÍ og SA undirrituðu við framlengingu kjarasamninga hinn 21. janúar sl. Þar voru aðilar sammála um að beita sér fyrir aðgerðum til lækkunar verðlags, m.a. með auknu aðhaldi að verðhækkunum.

Launafólki eru með þessu sendar kaldar kveðjur og ljóst að þessir aðilar ætla ekki að sýna samstöðu í því að halda hér verðbólgu í skefjum á komandi mánuðum,“ segir í pistli á vef ASÍ.

Ályktun miðstjórnar ASÍ:

„Miðstjórn ASÍ lýsir vonbrigðum með að verslanir Hagkaups, Nóatúns, Kosts og Víðis neiti verðlagseftirliti ASÍ að skrá vöruverð í verslunum sínum. Hvað hafa þær að fela?

Verðlagseftirlit ASÍ hefur um árabil unnið að því að auka upplýsingastreymi til neytenda og efla þannig neytendavitund um leið fyrirtækjum og stofnunum hefur verið veitt aðhald.

Með því að vísa verðlagseftirliti ASÍ á dyr eru Hagkaup, Nóatún, Kostur og Víðir að senda launafólki kaldar kveðjur og ljóst að þessar verslanir ætla ekki að sýna samstöðu í því að halda verðbólgu í skefjum á næstu mánuðum. Miðstjórn ASÍ hvetur launafólk til að sýna aðhald sitt í verki með því að hætta að versla við aðila sem ekki treysta sér til að upplýsa um verðlag í sínum verslunum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert