80 þúsund lítrar af rjóma

Bolludagurinn er í dag
Bolludagurinn er í dag mbl.is/Styrmir Kári

Nær áttatíu þúsund lítrar af rjóma fóru út í verslanir og bakarí vikuna fyrir bolludag. Til þess að framleiða svo mikinn rjóma þarf um eina milljón lítra af mjólk, sem er það magn sem fæst úr u.þ.b. 8.000 kúm á einni viku.

Á Íslandi eru um 25.000 mjólkurkýr og því þurfti um 30% af heildarstofninum til þessa verkefnis, samkvæmt frétt á vef Landsambands kúabænda.

 Að sögn Aðalsteins H. Magnússonar sölustjóra hjá Mjólkursamsölunni er gífurlegt magn af rjóma notað ár hvert í kringum bolludaginn. Ef miðað er við meðal viku þá þrefaldast rjómamagnið vikuna fyrir bolludag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert