Þingmenn taki stjórnarskrárfrumvarp til umræðu og afgreiðslu

Ung vinstri græn benda á að í ályktun landsfundar flokksins …
Ung vinstri græn benda á að í ályktun landsfundar flokksins komi skýrt fram að ekki eigi að víkja frá áformum um breytingar á stjórnarskrá. mbl.is/Ómar

Stjórn Ungra vinstri grænnna gerir skýlausa kröfu til þingmanna VG, sem og annarra þingmanna ríkisstjórnarinnar, um að þau beiti sér fyrir því að stjórnarskrárfrumvarpið verði tekið til umræðu og afgreiðslu í þinginu eins og það kom úr stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.

„Annað væri ekkert annað en svik við lýðræðislega ákvörðun þjóðarinnar. Ung vinstri græn minna þingmenn Vg á ályktun nýliðins landsfundar þar sem kemur skýrt fram að ekki eigi að víkja frá áformum um breytingar á stjórnarskrá.
Telja Ung vinstri græn það nauðsynlegt að Alþingi taki á þessu þingi afstöðu til þessa máls. Þá sér þjóðin allavega hvaða þingmenn gæta hennar hagsmuna og hvaða þingmenn láta sig meira varða vilja hagsmunaafla,“ segir í ályktuninni.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka