Laugardalslaugin lokuð

Laugardalslaugin var hreinsuð með háþrýstisprautun í dag. stækka

Laugardalslaugin var hreinsuð með háþrýstisprautun í dag.

Laugardalslaugin er lokuð í dag og á morgun vegna framkvæmda en mikið rask hefur verið á búningsaðstöðu laugarinnar undanfarna mánuði.

Á vef ÍTR kemur fram að opnað verður aftur á sunnudaginn klukkan átta um morguninn en framkvæmdir við búningsklefa laugarinnar hófust í nóvember. Í fyrsta áfanga var karlaklefanum lokað og kvennaklefanum skipt í tvennt á milli kvenna á karla.

Framkvæmdum lýkur í júní ekki í apríl

Áætlað var að þessu myndi ljúka fyrir 1. febrúar og að framkvæmdum við endurnýjun kvennaklefa myndi ljúka í apríl en nú er ljóst að það verður ekki fyrr en um miðjan júní.

Verið er að endurnýja búningsaðstöðuna í Laugardalslauginni

Verið er að endurnýja búningsaðstöðuna í Laugardalslauginni

Búið er að setja nýjar flísar, hitalagnir, nýtt loftræsingarkerfi, nýtt sturtukerfi og nýir skápar með rafrænum læsingum í þeim klefa sem er tilbúinn.

Búið að endurnýja helming búningsaðstöðunnar

„Þegar opnar í bítið á sunnudag verður búið að endurnýja helming búningsaðstöðunnar inni og fá konurnar að njóta hennar fyrst, en karlarnir fá útiklefana til afnota tímabundið þar til seinni áfanga endurnýjunar lýkur um miðjan júní.  

Þá verður aftur boðið upp á kynskipta inniklefa og útiklefa eins og áður var.  Það mun þó ekki væsa um karlana í útiklefunum því þar er hiti í gólfum, skápum hefur verið fjölgað og komið hefur verið fyrir sérstökum sturtugámi,“ samkvæmt fréttatilkynningu sem framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar sendi frá sér í dag.

Í dag var verið að hreinsa laugina með háþrýstisprautum. Þá verður einnig fyrir sunnudag búið að flytja inngang aftur í nýju afgreiðsluna en vegna breytinganna þurfti tímabundið að nota eldri inngang.

Miklar framkvæmdir hafa verið við Laugardalslaugina undanfarin tvö ár án þess að það hafi þurft að loka lauginni í langan tíma.

 „Það hefði ekki verið mögulegt nema fyrir góðan skilning okkar gesta sem sýnt hafa biðlund og þolinmæði“, segir Logi Sigurfinnsson forstöðumaður Laugardalslaugar í tilkynningu. 

Meðal  endurbóta og breytinga sem lokið er má nefna nýjan hreystivöll, nýjan sjópott,  endurnýjun brúar, hitalagnir á sundlaugarbakka með nýju mjúku yfirborði, endurbætur á útiklefum, viðgerð á þaki stúkunnar og nú á sunnudag verður lokið fyrri áfanga endurbóta á búningsherbergjum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Tveir með allar tölur réttar

20:07 Tveir voru með allar tölur réttar í Lottói kvöldsins og fá þeir samtals 15.840.220 krónur í sinn hlut. Einn var hins vegar með fjórar tölur réttar auk bónustölunnar og fær hann fyrir vikið 438.230 krónur. Meira »

Þrír vélhjólamenn á sjúkrahús

20:03 Þrír vélhjólamenn hafa verið fluttir á sjúkrahús í dag samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum en allir munu þeir hafa verið þátttakendur í mótorkrosskeppni sem fram hefur farið í nágrenni Kirkjubæjarklausturs í gær og í dag. Meira »

Sæta ekki ofsóknum í Króatíu

19:47 Fullrannsakað er að hópur fólks sem Útlendingastofnun hefur ákveðið að senda aftur til Króatíu sæti ekki ofsóknum þar í landi. Þetta sagði Kristín Völundardóttir, forstjóri stofnunarinnar, í kvöldfréttum RÚV. Meira »

Fjör á Grafarvogsdeginum

Frá Grafarvogsdeginum í dag.
19:30 Grafarvogsdagurinn var haldinn hátíðlegur í dag í Grafarvoginum í Reykjavík og var eins og áður boðið upp á fjölbreytta dagskrá sem sniðin var með það í huga að fjölskyldan gæti átt góðan dag saman. Meira »

Óðu snjóinn á leiðinni á völlinn

Leikmenn KF og KA óðu snjóinn í dag.
17:41 Það var ekki beinlínis sumarlegt þegar leikmenn knattspyrnuliðanna KA og KF skokkuðu út á völlinn fyrir leik sinn í fyrstu deildinni í dag. Þó að langt sé liðið á maímánuð og sumarið hafi litið dagsins ljós á dagatölunum, má enn víða sjá hvíta jörð á Ólafsfirði þar sem leikurinn fór fram. Meira »

Ræktun stöðvuð í heimahúsi

Úr myndasafni.
17:13 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag kannabisræktun í heimahúsi við Heiðarás í Reykjavík í kjölfar húsleitar en þar voru um eitt hundrað kannabisplötur í ræktun. Meira »

Hlutu bronsverðlaun í fimleikum

Stúlknalandsliðið. Fv. Gyða Einarsdóttir, Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir, Nanna Guðmundsdóttir, Lilja Björk Ólafsdóttir, Steinunn Anna Svansdóttir ...
18:34 Íslenska stúlknalandsliðið í fimleikum hlaut í dag bronsverðlaun í sveitakeppni á Norðurlandamóti unglinga í áhaldafimleikum. Einnig keppa tveir Íslendingar keppa til úrslita á morgun, þau Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir og Valgarð Reinharðsson. Mótið fer fram í Elverum í Noregi. Meira »

„Fögnum og endurnýjum kynnin“ myndskeið

landsbjorg
17:29 „Þetta var frábært þing og gríðarlega góð mæting alls staðar að af landinu. Það voru yfir 600 manns sem voru skráðir á þingið og þar fór fram mjög málefnaleg og góð umræða um helstu áherslur og málefni félagsins.“ Meira »

Skólameistari lætur af störfum

Einar Birgir Steinþórsson, fráfarandi skólameistari Flensborgarskóla ásamt Magnúsi Þorkelssyni, aðstoðarskólameistara skólans.
15:48 Einar Birgir Steinþórsson, skólameistari Flensborgarskóla, hefur ákveðið að láta af störfum og starfar því ekki út skipunartíma sinn. Hann segir að mjög sé þrengt af framhaldsskólunum og því fylgi álag að reyna að halda sjó. Meira »

Vélhjólaslys austur af Klaustri

15:17 Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Landspítalanum í Fossvogi um þrjúleytið með einstakling sem slasaðist í mótorhjólaslysi austan við Kirkjubæjarklaustur samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni. Meira »

Margir vilja láta mæla gildi sín

Fjölmargir hafa lagt leið sína í SÍBS-húsið til að láta mæla hjá sér blóðþrýsting og ...
14:20 Segja má að fullt sé út úr dyrum í SÍBS-húsinu í Síðumúla þar sem Hjartaheill býður í dag ókeypis mælingar á blóðþrýstingi og öðrum gildum. Sökum þess er nokkur bið eftir mælingum en létt er yfir fólki, að sögn fréttaritara mbl.is á staðnum. Áfram verður boðið upp á mælingar á morgun. Meira »

Breytt viðhorf til alvarlegra vanskila?

14:03 Forstöðumaður fyrirtækjasviðs Creditinfo segir umhugsunarefni að alvarleg vanskil séu að aukast á sama tíma og atvinnuleysi minnkar og kaupmáttur eykst. Hann veltir því fyrir sér hvort greiðsluvilja skuldara skorti eða greiðslugetu. Meira »

Þrjú vilja þjóna á Patreksfirði

Patreksfjarðarkirkja
13:32 Þrjú sóttu um embætti prests í 50% starfshlutfalli í Patreksfjarðarprestakalli, Vestfjarðarprófastsdæmi. Frestur til að sækja um rann út 7. maí síðastliðinn og veitist embættið frá 1. júní næstkomandi. Meira »

Eiginmaður Eyglóar spilar á saxófón

Sigurður E. Vilhelmsson líffræðingur, framhaldsskólakennari, þýðandi og eiginmaður nýorðins félags- og húsnæðismálaráðherra, Eyglóar Harðardóttir.
10:30 Makar þeirra ráðherra sem tóku sæti í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks deila því hvernig næstu ár horfa við þeim hvað fjölskyldulíf varðar, hvaðan þeir koma og hvað þeir gera sér til dundurs meðan makinn er í vinnunni við að stýra landinu. Meira »

„Þú ert viðbjóður og ógeð“

„Hann stóð í svefnherbergishurðinni og hleypti mér ekki út. Þegar maður er kominn í þessa ...
10:00 „Þó að ég byggi að reynslu úr mínu starfi við að aðstoða þolendur heimilisofbeldis þá datt ég sjálf í þennan pytt,“ segir kona sem hefur í gegnum árin unnið í velferðarkerfinu og m.a. oft rætt við þolendur heimilisofbeldis. Samt giftist hún manni sem beitti hana alvarlegu ofbeldi. Meira »

Undirbúa minningarmót um Motzfeldt

Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt, ekkja Jonathans, sem er gestgjafi Hróksliða í Nuuk, og Aleqa Hammond, forsætisráðherra ...
12:58 Liðsmenn Skákfélagins Hróksins hafa undanfarna daga dvalið í Nuuk, höfuðborg Grænlands, til að undirbúa minningarskákmót um Jonathan Motzfeldt, fyrsta forsætisráðherra Grænlands. Meðal annars var fundað í vikunni með forsætisráðherra Grænlands, Alequ Hammond, þar sem hún hét stuðningi sínum. Meira »

Tæplega 2.500 jarðskjálftar í apríl

Upptök jarðskjálfta á Íslandi í apríl 2013. Rauðir hringir tákna jarðskjálfta stærri en 0 að ...
10:17 Veðurstofa Íslands hefur staðsett tæplega 2.500 jarðskjálfta í apríl. Helsti atburður mánaðarins var snörp skjálftaröð vestan við Grímsey, sem hófst með jarðskjálfta af stærð 5,5 þann 2. apríl. Skjálftinn fannst víða á Norðurlandi. Nokkur þúsund eftirskjálftar mældust, og er úrvinnslu ekki lokið. Meira »

Færri nota frímerkin

Fallegasta frímerki ársins 2009.
09:39 „Við vonum að þau lifi á meðan sendibréfið lifir,“ segir Vilhjálmur Sigurðsson, forstöðumaður Frímerkjasölu Póstsins, um frímerkjanotkun landsmanna. Í gegnum árin hefur dregið úr notkun frímerkja og helst það á vissan hátt í hendur við fækkun bréfasendinga. Meira »
HÖFUM TIL SÖLU 57 FM SUMARHÚS
Höfum til sölu 57 m2 sumarhús ásamt 14 m2 svefnlofti, einnig 19 m2...
Sófasett til sölu kr.15.000.-
Grænt leður 3+2+1 í þokkalegu ástandi upplýsingar í síma 8616899...
Reno Master
Til sölu Reno Master árg.2004. Ekinn 218þús.km. Leifis.skoðaður. 17 sæta mjög v...
Prinsessuhjól
Til sölu þetta flotta prinsessuhjól fyrir 3-5 ára prinsessu. Verð kr. 7000. hraf...
 
Kennarastöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Kennara vantar ...
Metnaðarfullur starfskraftur
Sérfræðistörf
Alþjóðaskóli...
Orkuveitan - rennibekkur fyrir virkjanir

Samningskaup Orkuveita Reykjavíkur ó...