Viðgerð á ljósleiðara lokið

Míla
Míla

Viðgerð er lokið á ljósleiðarasliti sem varð á ljósleiðara Mílu í Önundarfirði á Vestfjörðum í gær. Viðgerð hófst í gær og stóð yfir í alla nótt en bilunin var á svæðinu milli Ísafjarðar og Holts í Önundarfirði.

Bilunin hafði áhrif á gagnaflutning til og frá Vestfjörðum, svo sem síma- og netsamband og lágu meðal annars útvarps- og sjónvarpsútsendingar niðri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert