Vörukarfan hefur hækkað hjá flestum

mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Á einum mánuði hefur vörukarfa ASÍ hækkað í 10 verslunum af þeim 15 sem verðlagseftirlitið heimsækir. Mest hækkaði karfan í Hagkaup um 4,2% og Nettó um 3% en hún lækkaði mest í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar um 1,8%, Nóatúni um 1,7% og í Iceland um 1,6%.

Vöruflokkurinn hreinlætis- og snyrtivörur er eini flokkurinn sem hækkar hjá öllum verslunum, mesta hækkunin er 6,7% hjá Bónus og 6,1% hjá Nóatúni meðan aðrar verslanir hækka minna. Flokkurinn brauð og kornvörur hefur hækkað um 0,6% - 5,5% hjá öllum verslunum nema Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, Iceland og Kjarval. Sætindi hafa hækkað töluvert í verði hjá 10 verslunum af 15 sem og vöruflokkurinn mjólkurvörur, ostar og egg sem hafa hækkað í verði í 11 verslunum af 15.

Líkt og áður sveiflast verð á kjöti töluvert og hafa þær sveiflur umtalsverð áhrif á heildarverð körfunnar, enda vegur sá vöruflokkur þungt. Verð á grænmeti og ávöxtum hefur lækkað hjá 13 verslunum af 15, mesta lækkunin er hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar eða 10,6% og hjá Samkaupum-Úrvali um 9,2%.

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem endurspeglar almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis.

Verðbreytingar eru skoðaðar í eftirfarandi verslunum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland; í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum-Úrvali, Tíu-ellefu, Samkaupum-Strax og Víði; í verslunum staðsettum á landsbyggðinni Kjarval, Kaskó, Kaupfélagi Skagfirðinga, Kaupfélagi Steingrímsfjarðar og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslanakeðjunum  milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar, segir í frétt frá ASÍ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert