Húsnæðið ekki íbúðarhæft

Selfoss
Selfoss mbl.is/Sigurður Bogi

Íbúðalánasjóður vill vegna frétta um auðar blokkir Íbúðalánasjóðs á Selfossi í fréttatíma Stöðvar 2 í gærkvöldi koma því á framfæri að engar leiguhæfar eignir standi auðar.

„Það er misskilningur að Íbúðalánasjóður liggi á leiguhæfum eignum og komi þeim ekki á leigumarkað. Allar leiguhæfar íbúðir í umræddum blokkum eru nú þegar í útleigu. Langflestar eignir sem sjóðurinn tekur yfir þarfnast lagfæringa og margar verulegra endurbóta. Þótt hægt sé að selja fasteignir á misjöfnu byggingarstigi eða í lélegu ástandi er ekki forsvaranlegt að bjóða slíkar íbúðir til leigu. Íbúðir sjóðsins sem ekki á að selja og eru orðnar hæfar til útleigu eru auglýstar eins fljótt og unnt er.

Blokkir í slæmu ástandi

Umræddar blokkir á Selfossi reyndust í mun verra ástandi en gert var ráð fyrir og voru ekki hæfar til útleigu. Brunaþéttingar með lögnum standast ekki byggingarreglugerð, gólfefni eru ónothæf í leiguíbúðir og þarf að skipta um þau og margar íbúðir eru án þröskulda, svo fátt eitt sé nefnt.

Kerfisbundið unnið að standsetningu

Eignasvið Íbúðalánasjóðs vinnur kerfisbundið að því að meta, standsetja og skrá íbúðir og ræður eftirspurn á hverju svæði miklu um forgangsröðun þeirra verkefna. Á Selfossi hafa íbúðir til leigu komið reglulega inn frá síðasta hausti. Eftirspurn á svæðinu hefur hinsvegar verið mjög sveiflukennd og mikil hreyfing er á leigjendum. Til dæmis hafa um 35 leigjendur horfið úr leigu hjá sjóðnum á þessu svæði síðan í haust.

Unnið er að endurgerð 8 íbúða í umræddum blokkum sem fara í útleigu um leið og þær eru tilbúnar. Fjórar nýuppgerðar íbúðir verða boðnar til leigu í þessari viku og er áhugasömum bent á að fylgjast með fasteignasíðum á mbl.is og fasteignir.is. Hægt er að skoða úthlutunarreglur leiguíbúða á heimasíðu Íbúðalánasjóðs, www. ils.is

Félagslegt húsnæði er á ábyrgð sveitarfélaga – ekki Íbúðalánasjóðs

Varðandi skort á íbúðum í félagslegu húsnæðiskerfi skal tekið fram að slíkt framboð er alfarið á ábyrgð viðkomandi sveitarfélaga, en ekki Íbúðalánasjóðs,“ segir í athugasemd sem Íbúðalánasjóður hefur sent frá sér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert